Fjölskyldan mín er skrýtin.
Þeir sem þekkja vel til í Birkibergi vita að á litla klóinu er lítill bókaskápur með tveimur hillum. Neðri hillan er iðulega tóm. Eða þangað til fyrir svona mánuði síðan. Þá var eins og að væri eitthvað þögult samþykki milli allra fjölskyldumeðlima um að safna öllum tómum klósettrúllum saman í þessarri neðri hillu. Þær komust upp í 30 stykki; þá var hillan tæmd og klósettrúllurnar settar í poka og geymdar (ATH! ekki hent). Og nú erum við sumsé byrjuð aftur að safna klósettrúllum.
Samt veit enginn ennþá hvað verður gert við þær. Enda er það aukaatriði.
Ég held að orðið salernishreinsir sé eitt torsagðasta orð í íslensku máli.
Wednesday, November 29, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Það má mála þessar rúllur rauðar og hvítar og búa til jólasveina/engla. Ljótt jólaskraut með eindæmum, en émeina, umhverfið maður.
Já, upphaflega hugmyndin mín var sú að mála þær grænar, raða þeim upp í þríhyrning og búa til dagatal. Svo er víst ekki hægt að gera þríhyrning úr 24 rúllum.
En svo að ég þurfi ekki að opna svarakerfið aftur þá biðst ég hér með innilega afsökunar á að hafa farið rangt með espresso-ið. Enn og aftur hef ég látið í ljós vankunáttu mína á kaffidrykkjum :-)
Iss, þetta expresso-rugl er allt kaffitári að kenna, svo þetta er nú ekki býsna mikil fáfræði í þér.
Ég er hinsvegar að huga að málssókn við þennan lýð næstu daga. Þetta er mér hjartans mál !!
(spurning um að láta Atla búa til svona banner sem segir: EKKI EXPRESSO (fade) HELDUR ESPRESSO!!)
Atli má líka búa til banner þar sem stendur EKKI ARNALDUR INDRIÐA (fade) HELDUR GUSTAVE FLAUBERT!
Post a Comment