Wednesday, June 07, 2006

Nostalgíukast

Þessi makkakaup hans Atla hafa kallað fram mikið nostalgíukast hjá mér (og fleirum ef marka má hljóðin sem berast úr Hjaltaherbergi). Gamla Makkíntostölvan hefur verið dregin fram og pabbi er búinn að hanga inni í herberginu hans Hjalta og spila uppáhaldsleikinn sinn, kapal, í rúman klukkutíma. Og þegar ég sat inni í eldhúsi áðan heyrði ég þetta gamla góða Klikk-ping! sem heyrist alltaf þegar kveikt er á henni. Sú heyrn vakti hjá mér löngun til þess að fara og eyða kvöldinu í Kristallaleit, Sjúkrahúsleikinn og Gæsamömmuleikinn.

Svo var ég að velta mér fyrir Andrésblöðunum í dag. Ég var að kíkja aftan á Andrésblöð og tók þá eftir því að gamla góða Andartakið er farið!!! Í stað þess eru komnar einhverjar auglýsingar um lélegar Disneymyndir eins og Tarsan tvö!!!
Ég man þá tíð að Andartakið var alltaf stútfullt af fróðleik og skemmtiefni um allt og ekkert - svona eins og Grænjaxlahandbókin. Með tímanum minnkaði reyndar fróðleikurinn og vék að lokum fyrir bröndurum. En núna er ekki einu sinni lagt upp úr því að hafa almennilega brandara (sem voru þó sjaldnast almennilegir fyrir).
Svo þegar ég sneri við blaðinu og leit á forsíðu þess þá sá ég að það er farið að segja hvað gerist í sögunum:
Andrés lendir í þessu!
Jóakim lendir í hinu!
Þu eru orðin verri en Syrpurnar, sem mér hefur þó aldrei þótt mikið til koma. Það á ekki að segja framan á blaðinu hvað gerist í þeim. Maður á bara að drullast til að lesa sögurnar til að komast að því. Og til þess er líka "Í næstu viku" aftan á seinasta blaði.
Mér gafst ekki færi á að kíkja inn í blaðið til að sjá hvernig sögurnar sjálfar væru orðnar en ég man þó eftir því að undir lok áskriftar minnar að Andrési voru þær orðnar heldur þunnar og lélegar og þá helst "Tölvusögurnar", FormúluEitt-sögurnar og Fótboltasögurnar.
Og þýðingin var heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir heldur. Allir voru hættir að fara til Fjarskanistan og farnir að fara til alvöru landa og orð eins og umlahóstatala og hrumpf voru alveg hætt að koma fyrir.
Þetta er skandall. Þegar ég verð orðin lærður þýðandi og komin á samning hjá Eddu verður sko breyting á. Ég ætla að gera Andrésblöðin eins og þau voru áður og endurheimta Andartakið úr helju.

Og hvar í fj..... eru tannburstarnir sem skipta um lit?!?

Að lokum legg ég til að Karþagó verði lögð í eyði.

0 comments: