Ásgeir Ingvarsson skrifar í Ljósvakadálkinn í Morgunblaðinu sl. sunnudag (þennan sem er við hliðina á sjónvarpsdagskránni), um hvað hann sé mikill aðdáandi fantasía (fantasína?) og tekur sem dæmi StarTrek og Harry Potter.
Ég ætla ekki að segja neitt um það fyrrnefnda enda hef ég aldrei horft á StarTrek í lífi mínu.
Mig langar hins vegar að gagnrýna hann fyrir það sem hann skrifar um Harry.
Hann byrjar greinina á að segja að hann hafi gaman af fantasíum „en geri þá lámarkskröfu að fantasíurnar séu raunsæjar og haldi samræmi innan marka þess ævintýraheims sem höfundurinn hefur skapað“.
Svo byrjar hann á eð minnast á einhvern plástur sem Harry var með á kinninni í lok fjórðu myndarinnar. Minnist svo annarar myndarinnar þar sem brotinn handleggur Harrys var lagaður með göldrum og fer að pæla í af hverju það hafi ekki verið hægt að laga sárið á kinninni með sömu aðferðum.
Í framhaldi af þessu talar hann svo um Time-Turner-inn hennar Hermione úr þriðju myndinni og spyr hvar hann hafi verið í fjórðu myndinni og hvort það hafi ekki verið hægt að fara aftur í tímann þar og breyta framgangi sögunnar. Spáir svo í af hverju í ósköpunum svona ungri stelpu hafi verið gefið vald til að ferðast um tíma og rúm og hvort að tímaferðalög væru ekki stórhættuleg fyrir svona unga krakka eins og þau.
Persónulega langar mig til að lemja þennan mann en þar sem ég er svo friðsöm þá læt ég mé bara nægja að segja:
Áður en þú getur kallað þig fantasíuaðdáanda/Harry Potter aðdáanda viltu þá gera alvöru aðdáendum þann greiða að lesa bækurnar áður en þú skrifar einhvað svona en ekki einblína fyrst og fremst á þetta sem (illa gerðar) myndir. Svörin við öllum þessum spurningum er að finnar þar, ef þú bara sest niður og lest þær af athygli. Stupid git.
Tuesday, June 13, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
4 comments:
Ég fagna þessum ádeiluskrifum litlu systur, augljóst að hún er efnilegur pólemíkisti. Mæli þó með því að hún varist óviðurkvæmilega orðanotkun.
Keep up the good work maternity dresses for brides car cd players for sale Lowrider dodge ramchargers
Enjoyed a lot! heart earrings c heapest fioricet common blood pressure medication latin ass 07
Very nice site! here
Post a Comment