Margir hafa lent í því að ókunnugir kettir hafi kíkt í heimsókn til þeirra. Hefur einhver lent í því að ókunnug börn kíki í heimsókn?
Ég var sumsé að lesa skemmtilesturinn Bókastoð í gær um tvöleytið þegar ég heyrði að útidyrahurðin var opnuð. Ég stóð upp og kíkti hver/hvað þetta var, en það var ekki fyrr en ég leit niður að ég sá að þarna var kominn u. þ. b. tveggja ára drengur, sem ég hafði aldrei séð áður, með snuddu í munninum og lítinn vörubíl í hendinni, spyrjandi ósköp sakleysislega: „Hva'mamma?“, á meðan hann leit á mig með stórum hvolpaaugum.
Ég þurfti að beita mig hörðu til að taka hann ekki upp og knúsa hann og spurja mömmu hvort ég mætti eiga hann.
Þess má þó geta að raunveruleg móðir hans var ekki langt í burtu og kallaði hún á hann um leið og ég hafði sent hann aftur heim og lokað hurðinni.
Ef þetta var ekki svona Aaaaawww móment, þá veit ég ekki hvað.
Friday, May 12, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment