Jæja, ég ætla að byrja þessa færslu á einni skemmtilegri staðreynd um mig: Ég fletti morgunblöðunum afturábak, svo að ég þurfi ekki að fletta yfir allar stjórnmálafréttirnar og dánarfregnirnar, sem ég hef engan áhuga á, áður en ég kem að myndasögunum.
Nú að venju fletti ég Morgunblaðinu í morgun og aldrei þessu vant fletti ég honum öllum, alveg fram á forsíðu.
Á forsíðunni rakst ég á þessa frétt.
Ég tók barasta alls ekkert eftir þessari einu auglýsingu þegar ég fletti blaðinu í gegn í fyrsta skiptið, þannig að ég þurfti að fletta því aftur til að skoða hana.
Þarna sést hvað máttur auglýsinga er mikill..........eða kannski er það bara ég sem er svona lengi að fatta.
Wednesday, March 29, 2006
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Post a Comment