Friday, February 03, 2006

Topp þrír staðir til að fá blóðnasir á:

1. Í strætó á leiðinni heim úr skólanum í dag.
2. Í samfélagsfræðiprófinu í samræmdu í 10. bekk.
3. Í skólasundi í 4. bekk.

Ég held að einn fimmti af öllum trjám í regnskógunum hafi farið í að stöðva blóðnasir í mér.
Ég fékk þær allsvæsnustu blóðnasir sem ég hef á ævi minni fengið í dag. Rétt eftir leikfimi datt mér í sakleysi mínu í hug að snýta mér aðeins. Það endaði svo með því að það fór að fossblæða og það blæddi og blæddi og blæddi alla leiðina inn í Kópavog.

Ófarasaga dagsins var í boði Strætó bs.

0 comments: