Montag, August 24, 2009

Zürich

Her med kemur sidasta bloggfaerslan adur en eg kem aftur heim til Islands. Thad er mikid buid ad ganga a sidan i sidasta bloggi. Sidustu dagarnir hja Marty-fjolskyldunni foru i heyvinnu og thrif (surprise, surprise), en af einhverjum astaedum voru sum tunin slegin aftur og th. a. l. thurfti ad raka thau aftur. En eg kvartadi ekki. Vedrid var med besta moti; i thrja daga i rod var gladasolskin og hitinn i kringum 30 gradur.

A fostudagsmorguninn pakkadi eg sidan nidur restini af dotinu minu og kvaddi fjolskylduna mina. Thad var svona svolitid bittersweet tilfinning ad kvedja folkid sem eg hef buid med i um tvo manudi og eg mun liklega ekki sja aftur i morg ar. Thad var serstaklega erfitt ad kvedja Juliu litlu, en hun var eiginlega ordin eins og litla systirin sem eg atti aldrei :(

Klukkan 10 a fostudagsmorguninn tok egsemsagt Seilbahnann nidur i sidasta skipti, hopadi upp i lest fra Flüelen og var komin til Zürich um kl halfeitt. Thar var mitt fyrsta verk ad finna hotelid mitt (X-tra hotel), en thad var i um 10 min. labbfjarlaegd fra Hauptbahnhof.
Restin af fostudeginum sem og laugardagurinn foru sidan adallega i versl og rolt um borgina. Nuna er eg farin ad thekkja Hauptbahnhof og Bahnhofstrasse (Laugarvegurinn theirra Zürichbua) eins og handarbakid a mer.

Sunnudagurinn atti upphaflega ad fara i safnarolt, en thar sem thad komu upp skyndileg vandraedi mer debetkortid mitt thannig ad eg gat ekki tekid ut ur hradbnkum, tha for eg bara a eitt safn. A Nationalisches Museum var Witzerland-syningin i gangi, syning um hluti sem svisslendingum finnast fyndnir, fullt af politiskum myndasogum ur dagblodum til synis (flestar theirra ad skjota a a Svisslendingar vilja ekki ganga i ESB), sem og brandarabaekur og gamanthaettir ur utvarpi og sjonvarpi. Virkilega ahugaverd syning.

Restinni af sunnudeginum eyddi eg sidan i rolt eftir Bahnhofstrasse og medfram Zürichsee thar sem eg for medal annars i 60m hatt parisarhjol til ad skoda utsynid yfir borgina.

Vedrid er buid ad vera frabaert allan timann og verdur afram i dag lika!

Nu er eg semsagt buin ad tekka mig ut af hotelinu, farangurinn er kominn i geymslu thar til i kvold og er er um thad bil ad fara ut ad kaupa thad sidasta sem eg a eftir af kaupa af minjagripum og sukkuladi.

Klukkan 18:16 leggur lestin min sidan af stad til München, hvar eg mun thurfa ad bida og drepa timann i um 5 tima eftir ad geta tekkad mig inn i flugid heim.

Eg vona ad thid hafid thad oll gott tharna fyrir nordan.

Bis Morgen!

Samstag, August 15, 2009

The End

Her med kemur lokabloggid mitt ur tolvu fjolskyldunnar i Eggberge. Sidasta vika er buin ad vera frekar roleg, adallega heyskapur og svo hin og thessi tilfallandi storf. Thad er annars helst ad fretta af mer ad eg skellti mer i berjamo i gaer, asamt fjolskyldunni og nokkrum vinum theirra. Vid tindum nokkur blaber, sem vid erum sian buin ad borda med besu lyst med vanillusosu og thad er faranlega gott!

A thridjudaginn sendi eg lika heim kassa af fotum og bokum med Svissneska postinum. Samtals eitthvad um 15 kilo, med kossum. Thad kostadi "ekki nema" 163 franka (x 118).

Thad eru annars ekki nema fimm dagar thar til eg held til Zürich. Og svo ekki nema niu dagar thar til eg kem loksins aftur heim. Alveg otrulegt hvad timinn er buinn ad vera fljotur ad lida, tho ad madur hafi ekki endilega tekid eftir thvi a medann hann var ad thvi.

I dag skellti eg mer i sidustu longu fjallgonguna mina i yndislegu vedri. Og a morgun mun eg sidan fara til Luzern i annad skipti, i thetta sinn til ad skoda hin og thessi sofn.

Eg veit annars ad venju voda litid hvad sidustu fjorir dagarnir bera i skauti ser, en thad verda pottthett allavega meiri thrif.

Thad er annars mjog serstakur dagur i dag. I dag (auk thess ad vera Maria Himmelfahrt, sem eg veit ekkert hvad er) eigum vid Dima tveggja ara samveruafmeli. Hvorugt okkar hefdi getad buist vid thessu i upphafi sambandsins, en her erum vid nuna. Eg er thvi midur ekki eins ordheppin og thu, elskan, en eg mun baeta ther thad upp thegar vid sjaumst. Strax a flugvellinum. I bili laet eg bara naegja ad segja: Eg elska thig, og eg vona ad vid munum halda afram ad vera eins frabaer saman og vid erum nuna.

Eg laet thetta gott heita i bili. Naesta blogg verdur svo ritad fra einhverju netkaffihusi i Zürich.

Bis später.

Samstag, August 08, 2009

Skura, skrubba og bona...

...bona, bona, bona og bona.

Ryksugulagid er buid ad eiga vel vid thessa vikuna, en hun hefur ad mestu leyti farid i thrif. Sidastlidna fjora daga er eg buin ad vera ad skrubba golfflisarnar i allri ibudinni med skrubbi og sapu og ad skrubba upp ur linunum a milli flisanna.
Thessu thrifaataki lauk svo i dag med thvi ad eg skrubbadi stigann og forstofuna, threif badherbergid og skuradi ad lokum yfir oll golf. En eg kvarta ekki. Thetta er agaett med rettu tonlistina i eyrunum. Plus thessir 100 frankar sem eg fekk fyrir alla vinnuna.

Annars erum vid Viviane og Julia bunar ad vera Sepplausar fra thvi a midvikudag, en hann for i svokallad Wildheuen, en thad thydir ad hann var ad raka saman heyi i miklum halla og fjarri mannabyggdum. Thetta er vist lifshaettulegt ef madur veit ekki hvad madur er ad gera og skv. Viviane tha deyja a hverju ari einn eda tveir bara af thvi ad their stigu vitlaust skref og fellu nidur.
Thetta var Sepp semsagt ad gera thar til i gaer, en tha forum vid ad taka a moti honum. Allt heyid og folkid var flutt heim med thyrlu og eg fekk i fyrsta skipti a aevinni ad sja thyrlu up close. Thad var otrulegt.

A midvikudaginn skrapp eg reyndar nidur i bae i goda vedrinu. Thar for eg m. a. a posthusid og keypti thar hvorki meira ne minna en thrja kassa af staerstu gerd til ad senda heim fot og baekur. Eg aetla rett ad vona ad thad se nog thar sem ad eg slysadist lika til ad kaupa fjora boli til vidbotar sem og eitt par af buxum. Thessi sending mun araedanlega verda randyr, en ef eg lit a bjortu hlidarnar tha er eg ordin vel sett med fot fyrir naestu fimm arin eftir thessa ferd :)

Og nu eru ekki nema 12 dagar thar til eg yfirgef fjolskylduna i sidasta skipti og held til Zürich. Og ekki nema 16 dagar thar til eg fae ad sja ykkur oll aftur eftir allan thennan tima. O, hve timinn flygur.

Annars er eg bara buin ad hafa thad agaett. Hef reyndar ekki sofid mjog vel undanfarnar tvaer naetur, en eg kenni hardsperrum fra helviti um thad. Eg a tho fri a morgun og tha mun eg sofa fram ad hadegi! (vonandi)

Enn veit eg ekki hvad naestu u. th. b. tvaer vikur bera i skauti ser, en eg mun orugglega ekki sitja adgerdarlaus.

Eg aetla annars ekki ad hafa thetta lengra nuna, einfaldlega vegna thess ad eg hef ekki fra neinu merkilegu ad segja.

Bis nächsten Samstag.

Samstag, August 01, 2009

Styttist i annan endan

Fyrst af ollu vil eg byrja a ad afsaka bloggleysid undanfarna daga. En thad er nu ekki svo mikid frasagnarvert buid ad gerast herna, thannig ad eg held ad thad se nu i lagi.

I odru lagi vil eg sidan bjoda ykkur gledilegan thjodhatidardag svisslendinga, sem er einmitt i dag. Undanfarna viku hafa flugeldar selst eins og heitar lummur uti um allt og their eru lika seldir uti um allt. Og tha erum vid jafnvel ad tala um ad their eru seldir i bokabudum.

Af mer er thad annars helst ad fretta ad eg er loksins komin med ny gleraugu. Akvad ad kaupa mer ferkontud gleraugu til tilbreytingar og eg verd ad segja ad thau koma otrulega vel ut. Ef eg hef ekki eitt stykki myndablogg adur en eg kem heim (sem eg tel oliklegt ur thessu, thar sem ad thad er thad litill timi eftir og eg vil reyna ad nota netid herna frekar litid) tha faid thid bara ad sja thau i agustlok. Thau kostudu, med glerjum og ollu samtals 197 franka, sem mer reiknast ad seu um 23000 kr.

Sidustu dagar eru annars, ad venju, bunir ad fara i heyskap og sma barnapossun og svo fekk eg meira ad segja ad hjalpa til vid ad bera skit a tun. Thad fol i ser ad Sepp og eg forum med u.th.b. halfskilometra langa slongu ut a tun og Sepp tengdi hana vid e.k. kloakgeymslu. Svo stod Sepp med slonguna og sprautadi skitnum a medan eg stod og horfdi a og lagadi slonguna einstoku sinnum thegar thad kom beygla a hana.

I gaer skellti eg mer svo til St. Gallen (eins og kannski flestir lesendur vissu). Vaknadi klukkan sex um morguninn, lagdi af stad klukkan sjo og var a ferdinni i thrja tima. Thar for eg a safnarolt og skodadi Bierflaschemuseum sem er safn af Svissneskum bjorfloskum af ollum staerdum og gerdum og fra ollum timum, Stiftsbibliothek sem er klausturbokasafn fullt af eldgomlum bokum og i ogedslega flottum rokkokko-stil, og ad lokum for eg svo a St. Gallen Textilmuseum sem er safn af efnum, gomlum fotum og ymsu sem thvi tengist. Otrulega flott.
Fann lika loksins goda bokabud (i bae sem eg mun aldrei koma til aftur, go figure) og geisladiskabud. Keypti mer ad sjalfsogdu nokkrar baekur og geisladisk.
Ad visu endadi kvoldid svolitid brosulega, thar sem ad eg tok lest of seint heim og missti th. a. l. af sidasta seilbahnanum. Bra tha a thad rad ad reyna ad labba heim (upp alla 1500 metrana) sem reyndist ekki vera thad god hugmynd, thar sem ad eg var baedi svong og ekki med neitt ad drekka og svo var nidamyrkur. Komst u. th. b. 1/3 af leidinni upp en thurfti tha ad hringja i Viviane og bidja thau ad koma ad saekja mig. Thau voru eins og gefur ad skilja ekkert svakalega anaegd med mig, enda gonguleidin storhaettuleg i svona myrkri, serstaklega ef madur thekkir hana ekki, og eitt feilspor getur verid lifshaettulegt. Sjalfri leid mer ad sjalfsogdu eins og skit fyrir ad hafa valdid theim svona miklum ahyggjum, en vid attum agaetar samraedur um thetta og nu er allt i godu.
Nest thegar (ef) eg missi af seilbahnanum mun eg leigja mer herbergi i baenum.

Vedrid er annars buid ad vera alveg storfint, tho med sma rigningu og skyjum inn a milli.

Eg veit ekkert hvad eg mun vera ad gera naestu 20 dagana en thad mun orugglega vera meiri heyskapur og barnapossun. Og svo einhver sma ferdalog.

Annars hef eg thetta ekki lengra i bili. Er ad spa i ad skella mer i gongutur i goda vedrinu. Lit kannski aftur vid herna eftir viku. En vid sjaumst allavega eftir 24 daga.

Auf Wiedersehen!

Dienstag, Juli 21, 2009

Meira fra Sviss

Jaeja, tha er eg loksins buin ad jafna mig eftir fostudaginn langa. Sarid er enntha opid en eg er tho farin ad komast i gegnum heilan dag an thess ad bresta i grat.

Lifid gengur sinn vanagang her i Svisslandi, en sidan i sidustu (alvoru) faerslu hef eg verid ad heyja og passa til skiptis. Vedrid er nokkud gott, alltaf rett undir thrjatiu gradum og a sidasta fimmtudag for thad upp i 34°. Og tha var sko rakad. En a moti kom ad daginn eftir rigndi eldi og brennisteini um allt landid, svo mikid ad ekki var hundi ut sigandi nema i ulpu.

Thyskan gengur vel, thegar folkid herna talar alvoru thysku. Thegar hrognamalid theirra, svissthyskan, er tolud (Nota bene alltaf thegar ekki er verid ad tala vid mig), tha er eg farin ad skilja eitt og eitt ord inn a milli.

Eg er farin ad thekkja nokkud marga herna med nafni (sem mer finns mjog skrytid thar sem ad eg laerdi ekki nofnin a sumum bekkjarfelogum minum fyrr en eftir halft ar) og folkid i nagrenninu er lika farid ad thekkja mig og heilsa mer a fornum vegi.
Eg hef lika lent i thvi ad okunnugir hafa avarpad mig ad fyrra bragdi og eg hef att godar samraedur vid folk uti i bae um island og hvad eg se eiginlega ad gera herna.
Ein kona vard mjog undrandi thegar eg sagdi henni ad thad vaeri tolud islenska a Islandi.

Thad eina sem mer finnst vanta herna er folk a minum aldri. Annad hvort er folkid sem eg a mest samskipti vid um og yfir fertugt eda undir fimmtan. Thad eru tho thrju systkini sem bua herna rett hja og hjalpa til vid heyskapinn sem eg hef svolitid talad vid og eru mjog naes.

Annars er eg naestum thvi buin ad vera herna i heilan manud (a fostudaginn/laugardaginn). Thetta hefur orugglega verid lengsti manudur sem eg hef upplifad, en eg hef tho laert margt sem mun orugglega koma mer ad godum notum i framtidinni, eins og ad skipta um bleiu eda thrifa klosett. Svo ekki se talad um alla thyskuna.

Thad sem framundan er svo thegar heyskapnum lykur (i lok juli eda byrjun agust) verdur liklega eitthvad af thrifum en tho einnig meira um ferdalog. Ekkert er akvedid enn, en planid er ad fara allavega til St. Gallen, Luzern (aftur) og kannski i einn eda tvo daga a kvikmyndahatidina i Locarno (ef thad seu einhverjar ahugaverdar myndir). Og svo natturulega ad skoda baeina her i kring.

Annars, fyrir tha sem ekki hafa frett af thvi, tha mun eg koma heim viku fyrr en aaetlad var, eda 25. agust. Astaedan er su ad eg hefdi misst af of miklu ur skolanum, meiru en eg gerdi rad fyrir, hefdi eg komid heim 1. sept.

Hef thetta ekki lengra i bili. Sjaumst aftur eftir 34 daga.

Auf wiedersehen.

Freitag, Juli 17, 2009

Godi Lagsason 21.05.1994 - 17.07.2009 In Memoriam

Eg man thegar eg sa thig fyrst. Thad var ast vid fyrstu syn. Ad fa thig inn i lif mitt var eins og ad eignast litinn brodur. Einhvern sem eg gat sed um, einhvern sem eg gat annast. Fra upphafi samveru okkar vorum vid hvolpar hvors annars. Eg gat alltaf treyst a thig, treyst a ad thu vaerir alltaf til stadar. Og thu varst alltaf til stadar. Thegar eg var nidurdregin og thegar eg atti erfitt varstu alltaf til stadar til ad hugga mig og lata mer lida betur. Thegar eg var glod og thegar eg atti gott varsti alltaf til stadar til ad gledjast med mer og lata mer lida enn betur. I fimmtan ar helstu mer i formi, likamlegu sem og andlegu. Thu kenndir mer ad virda natturuna. Thu kenndir mer ad sja alla smau hlutina i lifinu, eins og thad ad jafnvel stuttur labbitur getur hjalpad manni ad hreinsa hugann. Thu kenndir mer ad vera alltaf anaegd med thad sem eg hef. Fyrir ther var jafnvel hid ljotasta og mygladasta bein sem besti fjarsjodur i heimi. Thu kenndir mer ad lita alltaf a jakvaedu hlidarnar i lifinu. Alltaf thegar eg sa thig varstu gladur, og thu dreifdir gledi thinni hvert sem thu forst. Thegar thu komst inn i herbergi vard allt gladara og bjartara. Ad klora ther a bak vid eyrun eda a maganum var thad besta sem eg gat hugsad mer. Mer leid alltaf best thegar thu varst nalaegt.

Hver a nu ad halda mer i formi? Hver mun nuna hugga mig thegar mer lidur illa? Med hverjum a eg nuna ad vera i lidi? Med hverjum a eg nu ad vera vins? Hvar get eg nu sed magasyningar og hverjum a eg nu ad klora a bak vid eyrun? Hver mun nu taka a moti mer og bjoda mig velkomna thegar eg kem heim?

Tho get eg huggad mig vid thad ad thar sem thu lendir muntu geta elt alla tha ketti sem thig lystir. Thu munt fara i fullt af longum labbiturum og fa oll thau bein og kisumat sem thu getur i thig latid. Thu munt geta hlaupid hradar en nokkur annar. Thu munt slappa af i solinni eins lengi og thu vilt og thu munt geta leikid ther i og bordad allan thann snjo sem thu vilt. Thu munt aldrei thurfa ad fara i bad eda lata saga af ther klaernar. Thu munt aldrei aftur thurfa ad borda heilsuruslfaedi.

En hja mer hefur myndast stort svarthol thar sem thu varst. Eg mun avallt minnast thin hvort sem mer lidur vel eda illa.

Thu varst besti brodir i heimi. Besti vinur i heimi. Besti hundur i heimi.

Hvil i fridi, gamli vinur. Eg verd alvallt hvolpurinn thinn.

Mittwoch, Juli 08, 2009

Tuttugogeinsars i Sviss

Va! Eg er ordin tuttugu og eins ars gomul(ung). Thad er reyndar ekki svo mikid odruvisi en ad vera tuttugu ara, en madur verdur nu ekki 21 ars nema einu sinni.

Eg er ekki bunin ad vera ad gera mikid i thessarri viku, vinnulega sed. Enda vedrid ekki alveg buid ad vera thad besta fyrir heyvinnu. Atti fri a manudaginn, sem eg notadi til ad fara i H&M i Schattdorf, nalaegum bae. Eyddi thar rumlega 200 fronkum. Var reyndar ad Passa Juliu allan daginn i gaer og eldadi m. a. velheppnadan Mittagsessen og ryksugadi ibudina.
Og i dag var svo stori dagurinn. "Vaknadi" 21 ars, klukkan 8 i morgun eftir adra nottina i rod af of litlum svefni. Tok svo Seilbahnann nidur klukkan tiu og hoppadi upp i lest til Luzern. Thar rafadi eg um gotur baejarins, kikti i fleiri budir og eyddi um 150 fronkum til vidbotar. Nu held eg ad eg lati veskid eiga sig, allavega fram i agust. En hell with it, thad er nu ekki a hverjum degi sem madur kemst i H&M.
Kom svo aftur heim um halfattaleytid i ljomandi goda afmaelisboku sem Viviane bakadi handa mer.

Hins vegar veit eg svo ekkert hvad er framundan hja mer. Thad a vist eftir ad rigna thad sem eftir er af vikunni (eda allavega vera mjog rigningarlegt yfir). Thannig ad thad verdur vist ekki mikid um utivinnu. En kannski verd eg bara latin thrifa theim mun meira.

Laet thetta gott heita ad sinni. Bis später.